Lilja Jóns

JIBBÝ´KAEI MOTHERFUCKER

29.05.2009 16:04:06 / Lilja

Strákar og vinna

Ég held að ég upplifi stráka eins og vinnur
Ég hef skipt um vinnur alveg alltof oft, þegar fólk spyr mig hvers vegna þá segi ég að það sé vegna þess að ég fái svo fljótt ógeð
En allt í einu fór ég að spá...
Er ég kannski með þessa sömu skammvinnu tilfinningu fyrir strákum eins og ég hef fyrir vinnum?
Ég fæ alveg rosalega fljótt leið á strákum, kannski er það bara því hrifningin er ekki nóg, eða ég vona það, því ég vona ég upplifi ekki stráka eins og vinnur því það er ekki jafn auðvelt að skipta um samband eins og að skipta um vinnur... alla vega ekki fyrir mig
Hvað er það, sumar stelpur skipta um sambönd eins og ég veit ekki hvað,láta líta út eins og það sé bara ekkert mál að byrja í sambandi...
Kannski er ég sami aulinn í þessum strákamálum eins og ég er í klaufsku:!:
Ef ég fer í samband þá er það alla vega 1 ár í næsta... eða eins og núna, að verða 3 ár og ekkert samband á leiðinni...
Kannski er það ég, hræðsla, lonerinn í mér og þessi tilfinning að fá fljótt leið, ég veit ekki
Ætti kannski að fara upplifa stráka eins og ég geri vinnur, finnst ekkert mál að skipta um vinnur, jafnvel gaman:) þannig að ef ég næ að vera eins opin fyrir strákum eins og ég er fyrir vinnum þá kannski gerist e-ð, nema ég fái leið fljótt;)
Haha nei, er reyndar mjög sátt í litlu nýju íbúðinni minni, ein, get horft á það sem ég vil, lesið í friði, borðað það sem ég vil án þess að líta illa út og bara gert allt sem ég vil
kostir og gallar, kostir og gallar;)
.....
Eitt annað
what is up með verðið á bensíninu:!::!::!:
sjæs!!! skil ekki stjórnvöld að taka þennan pólinn að hækka bensínið á þessum tímum... þeir eru að reyna styðja sem best við þá sem minnst hafa og hvað gera þeir svo, hækka skatta á bensíninu og akkúrat þegar bensínverð er að hækka í heiminum, þannig að sú hækkun á eftir að leggjast á...:$
Algjört rugl:!:
Ok, skil kannski áfengisskattinn og sykurskattinn, ekkert sérstaklega skemmtilegt en það er samt e-ð sem er í lagi, en bensínið sjæs
eins gott að það verði boðið uppá ókeypis strætó kort næstu önn8|
Later
L

» 1 hafa sagt sína skoðun

23.05.2009 00:13:26 / Lilja

Stór stelpa

JÆJA!!!
Langt síðan ég lét í mér heyra...
Margt og mikið og lítið sem ekkert búið að gerast
Flutt að heiman:D
Jebbs, Lilja er LOKSINS flutt að heiman, komin í litla sæta íbúð í áslandinu og uni mér bara svona svakalega vel:)
Prófin búin, ein einkunn komin í hús sem ég er ekki sátt með:(
náði en varla mikið meir en það...
Annars byrjuð að vinna, byrjaði strax eftir próf sem ég sé pínu eftir, hefði alveg viljað smá frí, EN alltaf tekur maður pening fram yfir hvíld haha
Nonni bró í heimsókn ohh hvað ég er búin að sakna hans, gott að fá að knúsa brósa sinn aftur:)
Kristjana líka í heimsókn, kom í surprice heimsókn, allir bara að kíkja á eyjuna, mætti halda að DK sé ekki að gera sig;)
Annars er ég og Helga búnar að njóta okkar saman undanfarið, hjólarúntur í Rvk, kaffihús, leikhús og idol, tala nú ekki um júróvisjon með nammi:) þvílíkt gaman að geta loksins leikið sér saman almennilega við vinkonur sínar:)
Svo ætlum við að vera þvílíkt duglegar í sumar að hjóla um, fara á línuskauta og í sund, heilsan alveg í fyrirrúmi hér á ferð:D
Hittum einmitt Ernu í sundi um daginn híhí, talandi um blast from the past, við þrjár saman í sundi, þvílíkt gaman, líka hún sagði mér frá skóla í Hollandi sem er massa góður auglýsingaskóli, þannig að kannski maður þurfi ekki að gera sig gjaldþrota við að fara í auglýsingasálfræði í usa... ætla alla vega að tjékka á honum, Holland hljómar heldur ekki illa, fyrir utan málið, sjæs... það yrði erfitt:S
Annars er það bara Kenny.. því miður:S í aaaallllttt sumar, EN það er vinna:!: ehaggi;)
Nóg komið núna, blogga aftur sooon

» 2 hafa sagt sína skoðun

21.04.2009 20:37:34 / Lilja

Vantar ódýra eða gefins þvottavél!!!

Vantar ódýra helst gefins þvottavél!!!
vitiði um???
endilega senda á
lsj1@hi.is ef þið vitið um






Takk takk

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.04.2009 18:34:52 / Lilja

Styttist

Jæja það styttist nú mikið í sumarið, maður finnur það svona þegar sólin skín á gluggann hjá manni þegar maður vaknar, bara snilld:)
Samt fyrir sumarið eru prófin, þau nálgast HRATT
29 er fyrsta prófið og 12 maí er seinasta
þá byrjar vinnan á KFC
Planið í sumar er ekki mikið.. er að vinna fyrstu helgina í júli, en ætla reyna eyða tíma með stelpunum mínum, systrum mínum, Bjögga og litlu frændsystkinunum sem mun fjölga um eitt í júni:)
Já annars verð ég nú að reyna fara til hans Nonna míns, meika ekki að hitta hann fyrr en um jólin:!:
ónei, verð að knúsa hann fyrir það, þannig að ætla reyna skreppa til hans og svo ætlum við kannski að kíkja til köben á Kristjönu og gera e-ð skemmtilegt:)
Svo eru það náttla eyjar í ágúst, þjóðhátið:) Fer samt ekki fyrr en á laugardeginum þar sem ég er að vinna á föstudeginum en það er allt í lagi, bara gaman að fara e-ð,  og náttla hitta Steinu mína þar sem hún verður í eyjum í allt sumar:( á eftir að sakna hennar MIKIÐ:!:
Já, næst á dagskrá eru það prófin, svo tekur tjillið og sumarið við áður en SEINASTA önnin í skólanum byrjar, jiiiii finnst ég nýbyrjuð, get svarið það

Later
L

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.04.2009 19:53:49 / Lilja

Leti

Vá, hef ekki haft tíma til að henda neinu hérna inn...
nei það er ekki rétt, ég hef alveg haft tíma svona inná milli en sá tími fer helst í að hvíla ofurkeyrðan heila og líkama og í að liggja í súkkulaði vímu upp í rúmi:)

Ég geri ekki annað þessa dagana en að fríka út yfir ritgerðinni sem ég á að skila næsta þriðjudag:!: ég er alltaf að opna tölvuna, kíkja á hana, laga eitt og eitt orð, lesa aðeins meira, laga enn meira og lesa aðeins meira og laga ENNÞÁ meira:!::!::!:

Hvernig er annað hægt en að vera stressaður, ef ég fæ lágt fyrir þessa ritgerð þá verð ég bara að segja mig úr áfanganum:$
Langar líka svo að stinga þessari ritgerð upp í helv.. boruna á kennaranum og sýna honum að ég geti þetta alveg, ohh verð svo pirruð ef ég fæ svona lélega kennslu og enn þá verri viðbrögð frá kennara
ég er kannski vitlaus en ég hélt að nám væri til þess að læra:!:, hélt að kennarar ættu að vera til staðar fyrir okkur, sýna okkur hvað við gerðum rangt, benda á hvað mætti betur fara og vera til staðar ef maður vildi leggja meira á sig og spyrja spurninga.
Greinilega ekki hjá einum ónefndum dósent í sálfræðinni, nei, hann bregst bara verstur við ef maður vill hjálp og sakar mann um svindl og næstum rekur mann út með öskrum...
Ég er alla vega ákveðin í að hækka einkunina fyrir næstu ritgerð:!:
Ef ekki, þá ætla ég sko að fara í hart, leyfi engum þurrkuðum kennara að komast upp með það að láta mér líða illa alla önnina yfir það hvað ég er vitlaus

Já, eins og þið heyrið þá er mikill pirringur búin að vera krauma í sér undanfarnar vikur, kannski líka stress yfir hvað það er stutt í prófin
þetta blandast allt saman
En ætla reyna leggja þessa ritgerð frá mér í nokkra daga til að geta lesið hana yfir með opnum hug um helgina
;)
Hvað á annars að gera af sér um helgina?
Ætli lærdómurinn verði ekki fyrir valinu hérna...

» 3 hafa sagt sína skoðun

20.03.2009 11:56:26 / Lilja

Minning

Minnist Arnars í dag
10.12.1982 - 20.03.2006

Til tunglsins og tilbaka

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.03.2009 21:48:32 / Lilja

Leiðist...

Hvers vegna finnst mér lífið alltaf eins og það sé í biðstöðu
Ég er alltaf að bíða eftir einhverju skemmtilegu
Svo sé ég myndir eða þætti um gamalt fólk sem kvartar um það að hafi beðið alla ævi eftir einhverju skemmtilegu sem kom aldrei:!:
Þá hugsa ég að núna sé ég hætt að bíða og ætla fara og GERA e-ð skemmtilegt
En ég geri það aldrei:S
Sama með ástina
Ég bíð bara eftir að ástin finni mig
Ég leita ekki að henni
Ég á eftir að enda ein af þessum gömlu krumpuðu konum sem er hrikalega bitur út í lífið því ég upplifði aldrei neitt skemmtilegt eða fann aldrei ástina og eyddi því lífinu ein:!:
http://carpefactum.typepad.com/photos/uncategorized/2008/01/21/grumpy.jpg
Öss
Hrikaleg staða, mig hlakkar ekki til þess og vil það ekki
Spurning um að maður fari og finni þessa góðu hluti sem allir eru alltaf að tala um...
En það þarf að klára verkefni, ritgerð, skýrslu og rannsóknaskýrslu
Svo koma prófin:$
Eftir það er sumarið þá KANNSKI, kannski getur maður farið og leitað að einhverju skemmtilegu og spennandi:$
L

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.03.2009 20:59:20 / Lilja

Kynlífsbindindi

Það eru allir í kringum mig að tala um að fara í kynlífsbindindi
Vegna þess að það er óléttu faraldur í gangi:!: Gjörsamlega ALLIR óléttir, nýbúnir að eiga eða eru að ganga með:!:

ég vildi óska að ég hefði það, það gott að geta valið hvort ég færi í bindindi eða ekki:!:
Ég virðist hafa verið sett í bindindi af einhverjum æðri
Fékk engu um það ráðið
Kannski ágætt, verð ekki ólétt á meðan
Væri samt til í að geta ráðið því hvort ég veldi þetta bindindi eða ekki
Ég held ég myndi ekki velja það, bara nota smokk
;)
Þangað til
þá bara verð ég bara ánægð með að verða alla vega ekki ólétt eða ekki einu sinni eiga í hættu á að verða ólétt
:)

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.03.2009 19:02:33 / Lilja

"2009"

Var að kaupa mér glænýja hönnun af júníform kjól með Krissu sys - það er svona 2009:)

Núna pössum við skólafólkið hrikalega inní myndina, við erum svo vön að lifa eins og allir eru að reyna lifa núna, vön að eiga aldrei pening en samt kunna að gera fullt af hlutum
:)
Núna erum við ógeðslega inn, svona 2009
Ef landið fer ekki á hausinn þá hættum við kannski að vera inn eftir nokkur ár
En þangað til þá kannski getur maður aðeins pælt minna í fatakaupum og nýju hári, því common
Er það ekki ógeðslega 2007 að vera í nýjustu fötunum með glænýtt hár alltaf
;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.03.2009 11:33:04 / Lilja

Hlakka til

Hlakka til næsta fimmtudag - þá ætlum ég Stína og Lauga að hittast á Friday´s og aðeins að njóta þess að törnin sé búin í bili, fá okkur eitt stk muchlide kokteil og bara spjalla aðeins, ekkert búnar að hittast þessa önn svona þrjár sem er alveg glatað:!:

Hlakka til í maí þegar prófin eru búin og maður fer að líta eftir íbúð:!: I know, stórt skref hjá manni að flytja frá hótel mömmu:$ En alveg kominn tími til að reyna standa á eigin fótum og líka bara til að athuga hvort maður meikið það... Hlýtur að vera þar sem allir aðrir geta það... verður örugglega doldið einmanalegt fyrst en þar sem ég er frekar mikill loner þá á ég bara eftir að fíla það held ég:)

Hlakka til 21 mars þegar reunionið er:) held það verði mjög gaman, frekar leiðinlegt hvað það virðast fáir ætla mæta sérstaklega í ljósi þess að næsta er ekki fyrr en eftir 10 ár en þá verður bara enn meira að borða fyrir okkur sem mæta og þá kynnumst við bara betur:) það verður ótrúlega gaman að spjalla aftur við fólk sem maður hefur ekki séð lengi, klæða sig upp og gera sig sætan8)

Hlakka til að fara í klippingu og litun þar sem ég er eins og sextug kona þegar rótin er orðin svona mikil í dökku hári þá virðast hin hárin vera grá:$ hlakka mikið til:D

Hlakka ekki til þegar brósi flytur út:( það verður mjög sorglegt og einmanalegt á eftir að vera hálfvængbrotin held ég:(

Hlakka til sumarsins þó mig hlakki ekki til að fara vinna á KFC

Hlakka til margs
:)

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.02.2009 19:53:24 / Lilja

Creative

Þessa dagana er ekkert sem kemur upp í hugann á mér
:!::!::!:
Eins og hann er vanalega fullur af drasli, eiginlega alltaf of mikið drasl sem ég næ ekki að fara í gegnum allt og er því andvaka tímunum saman til að reyna skipuleggja ALLAR þessar hugsanir og hugmyndir sem flæða í gegnum hugann á mér
En núna
BLANK
Nada, nothing, ekkert
því miður og verr
Því akkúrat núna þá þarf ég á hugmyndum og hugsunum að halda
Ritgerðir, verkefni, sjá um umræðutíma, próf, önnur ritgerð
Alltof mikið
:!:
Akkúrat þegar hausinn er bara blank
Kannski er það þess vegna, akkúrat þegar ég þarf á honum að halda þá bregst hann mér, eins og hann er oftast í yfirvinnu þá gerist ekkert þegar ég þarf á því að halda
Nei, núna í fyrsta skipti í LANGAN tíma þá sofna ég þegar ég leggst á koddann, engar hugsanir eða hugmyndir sem halda fyrir mér vöku neibb
Svo þegar ég vakna næsta morgun og ætla mér að byrja á ritgerð eða verkefni þá stendur word autt, það bara kemur ekki neitt
Týpískt
Af hverju þarf heilinn að bregðast manni akkúrat þegar maður þarf á honum að halda, svo þegar maður vill hvíldina og svefninn þá er hann í overtime
Typical
:$

» 2 hafa sagt sína skoðun

20.02.2009 21:23:14 / Lilja

N.E.R.D

Jæja
Er maður orðin nörd
lærandi á föstudagskvöldi
Vakna í fyrramálið og læra allan daginn
Kannski horfa á vidjó og borða nammi annað kvöld
Og
Læra svo meira á sunnudaginn
...
Þetta er mitt líf
Vona helgin ykkar verði aðeins meira spennandi
;)

Var að kaupa bíl
Það er samt spennandi:D
Ég er ekki lengur á hvíta golfinum prumpandi um allar götur
ó nei, ég er komin á gulllitaðan golf, algjör kaggi
Hann heitir Carrie
því hann er svona hálf karrýlitaður og í höfuðið á uppáhalds -
Carrie Bradshaw
Skrýtið samt að kveðja hinn
Hann er sko búinn að fylgja mér mikið og lengi
Allar minningarnar
Finnst eins og hluti af mér sé að fara...
ég og hann, erum búin að upplifa mikið skal ég nú segja ykkur
Hann er búinn að vera með mér í góðum og vondum stundum
Veit ekki hvað ég hefði gert án hans fyrir tveimur árum
Eða á þeim tímum þegar allir aðrir bílar voru að festast í snjónum en þessi elska
hann komst allt:)
Eins og hann hefur fengið leiðinlegt trídment frá mér í gegnum árin... þá var hann aldrei leiðinlegur tilbaka
Já, vona að Carrie verði jafn góð við mig
Samt erfitt, að kveðja fyrstu ástina
:$
En ef þið sjáið gulllitaðan kagga keyra um göturnar, þá er það nýja og unga skvísan sem ég skipti út fyrir hinn
Lots of love til hvítu elskunnar minnar
:)
Góða helgi
L.

» 3 hafa sagt sína skoðun

17.02.2009 13:05:50 / Lilja

Hvernig allt breytist

Finnst svo fyndið hvernig umræðuefni breytast með árunum
Sérstaklega á undanförnum árum
Í kringum 14-20 ára þá talaði maður ekki um mikið annað en stráka, djamm, föt, stráka, slúður og stráka
Hittumst oft vinkonurnar og horfðum á Sex & the city og lifðum okkur inní vandamál þeirra og fundum okkur alveg inní þeim, borðuðum nammi eða drukkum hvítvín
Svo hittumst við til að ræða slúður og vesen sem við vorum að lenda í með hina og þessa stráka:!:

Í dag þegar maður hittir vinkonur sínar þá er rætt um íbúðina, kreppu, matarinnkaup, hækkun á mat og vörum, fjölskyldur, bíla, BÖRN, meðgöngu, brjóstagjöf, barnaafmælisgjafir, skýrnagjafir og svo margt fleira
Við erum orðnar svo "fullorðnar"
Eða það er að segja vinkonur mínar, ég tek þátt í umræðunum og reyni að vera með þótt ég tengi mig ekki beint við það sem þær eru að tala um...
Ég veit ekkert hvernig er að búa ein með kæró, hvernig er að kaupa inn, sjá um barnið og reyna að ströggla í skóla

Fyndið samt að pæla í því hvað mikið breytist frá 20-25
Fólk kaupir sér íbúð
Nælir sér í maka
Eignast börn
og í raun bara fullorðnast

Hjá mér er aldurskalinn held ég öðruvísi
kannski í kringum 25-35 gerist þetta hjá mér
Eins og núna 26 þá ætla ég að reyna flytja að heiman LOKSINS
svo kannski einhvern tímann á næstu 10 árum finnur maður sér maka
annars er það master í útlöndum, svo kannski maki, svo kannski barn...

Allt nokkrum árum eftir öllum öðrum, sem mér finnst fínt, ég er ekki alveg tilbúin til að verða svona "fullorðin" strax
;)
Er annars að fara kíkja á litla prinsinn hennar Hildar, enn ein viðbótin í vinkonuhópinn:D

» 6 hafa sagt sína skoðun

15.02.2009 18:05:22 / Lilja

Vá hvað maður hefur það gott...

Ég á eina vinkonu sem er jafngömul mér, þriggja barna móðir, vinnur 100% með og er í verkfræði í háskólanum og ekki nóg með það heldur var karlinn hennar að fara út til Noregs að vinna þar sem það er enga vinnu hérna að fá...
Þar sem hún er allt í einu orðin ein þá vill maður endilega hafa meira samband við hana bæði til að styðja hana í þessu og bara vegna þess að hún er svo skemmtilegur félagsskapur;)
En undanfarið hef ég verið að fara til hennar að læra á kvöldin og ég er bara overwhelmed...:$
Ég vissi af þessu öllu þú veist þrjú börn og ALLT það
En vá maður áttar sig ekki á þessu
Þar sem að ég hef bara rassgatið á sjálfri mér til að hugsa um þá fatta ég ekki hvað aðrir í raun þurfa að gera mikið
Ég kvarta og kveina yfir lífinu mínu sem samanstendur af mér og mér og mér og me-time og aðeins meira af mér....
Ég veit það alla vega að ég tek ofan af fyrir þessari vinkonu minni og náttla öllum vinkonum mínum og systir sem eru með börn og heimili:!:
Þetta er miklu meira en ég gæti
:$
Ég alla vega áttaði mig á því að ég er alltof sjálfselsk og self centered að ég gæti ekki verið að fórna tímanum MÍNUM
Sem gerir mig hrikalega grunna manneskju, alla vega í augnabikinu...
En ég alla vega segi aftur að ég lít upp til ykkar allra stelpur mínar, þið sem eigið börn og heimili, vona ég fái einhvern tímann styrkinn ykkar
;)

» 3 hafa sagt sína skoðun

05.02.2009 23:09:36 / Lilja

Guði sé lof að það er föstudagur

Búin að kaupa kjól
Klippa toppinn
Ákveða fatnað
Vantar að ákveða glingur, fara í ljós, læra, fara í ræktina og naglalakka mig
This night is gonna be awesome:!::!::!:
Hlakka til að sjá ykkur
Kem svo með slúðrið
Love
L.

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 29
Heimsóknir
Í dag:  103  Alls: 165155
Klukkan
Dagatal
febrúar - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28
FyrriNæsti