Lilja Jóns

JIBBÝ´KAEI MOTHERFUCKER

31.01.2008 12:18:39 / Lilja

Röskva - Vaka

Hvers vegna hef ég bara ENGAN áhuga á stjórnmálum

Ekki nóg með að mér finnst ég alltaf hrikalega stúpid þegar verið er að tala um kosningar og ríkisstjórn/borgarstjórn

Hef reynt í alvöru:!: en það tollir bara ekkert inni, er bara svo hrikalega HRIKALEGA sama...

Reyndar er skiljanlegt þessa dagana að vita ekkert í minn haus þar sem sjálf borgarstjórnin veit minna í sína8|

Fattaði náttla heldur ekkert þetta "djók" í spaugstofunni um daginn sem allir eru að tala um... Fylgist reyndar aldrei með spaugstofunni því ég fatta aldrei húmorinn sumpart mér að kenna því ég fylgist ekki með fréttum og sumpart því þeir eru bara alls ekki fyndnir:!:

Spurning, fara liggja yfir þessu eins og maður sé að fara í próf :| RIGHT

Eða halda áfram að skipta um umræðuefni og koma mér í burtu þegar fólk verður of alvarlega leiðinlegt að rífast um stjórnmál8)

 

Fylgist samt með forsetakosningunum í USA:haha: finnst þær það eina sem skiptir máli:$

 

Má reykja örugglega eina helgi á þessu ári og það er núna á afmælinu mínu:D

Brjáluð tilboð alla helgina í öllum bænum SWEET

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 19:26:43 / Lilja

Upphitun og afmæli framundan

Ég átti afmæli í gær

ég átti afmæli í gær

ég átti afmææææli í gær

ég átti afmæli í gær

:D Jeijjjjj

25 ára, jáhá hrukkurnar komnar og gráu hárin byrjuð að skína í gegn:$

Hahahahha right, nei ég er alltaf "tvítug" í anda og haga mér og lít út þannig líka;)

Bauð stelpunum í smá heimsókn á laugardaginn sjá nýju íbúðina og skála fyrir mér á miðnætti, helv fínt rosalega sakna ég þessara stelpna snoooo mikið, gerum þetta alltof sjaldan:$

En svo verður alvöru afmælið næstu helgi:haha:

Helv mikið tilhlökkun verð ég að segja og ekki bara í mér heldur bara öllum held ég;)

Verð sjálf deitlaus þar sem það gekk ekki upp hjá mér og gæjanum, leiðinlegasta við það allt saman er að við viljum bæði hittast en sökum annarra ástæðna getum við það ekki:( en þá greinilega er þetta ekki meant 2 be:(

Kannski maður finni sér e-ð deit á laugardaginn fái eins og einn fine gæja í afmælisgjöf8)

Hlakka geggjað til, líka sjá alla sem ég bauð þangað til þá elskurnar:haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.01.2008 10:59:38 / Lilja

Ms Ledger nó more:(

Já sorgin er mikil núna í mínu hjarta

Strákurinn sem ég var að bíða eftir að kæmi og myndi skella mér á bak hvíta hestsins er bara dáinn:)

Heath Ledger þessi æðisgengislegi súkkulaðimoli fannst látinn í gær:(

Ég meina við erum að tala um...


:cry::cry:Já sorglegt:cry::cry:

.................

Gott að maður heldur sér fyrir stafni með því að skoða og athuga íbúðir, fórum einmitt í gær að skoða eina, aðra í kvöld:!:

Ekki bara íbúðir heldur er ég búin að liggja á netinu skoðandi BikBok og H&M þar sem gamla fólkið er að fara út í nótt;)

Kannski maður verði heppinn og fái smá pakka, þó ekki nema nýjar Snoopy nærbuxur, komin með ógeð á þeim sem ég á núna, alltaf gaman að fá ný nærföt:) Styttist í afmælið mitt JEIJ:D

Get ekki beðið, samt drullukvíður mig fyrir, en ef það mætir enginn og ég sit uppi með húgó sal og skammartilfinninguna í buxunum:$

Vona bara að ég sé svona hrikalega skemmtileg og auðvitað sæt að fólk geti bara ekki annað en látið sjá sig þó ekki nema til að sjá mig:$:$:$

Bara í bullinu í dag, lítið sofið, stressið að byrja út af skólanum og sorgmædd:(

Seinna

L.


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.01.2008 19:46:22 / Lilja

Djammarinn

Greinilegt að maður er djammarinn í hópnum, fékk símtal í gær frá Kristjönu, henni langaði svo að gera e-ð og hringdi þá í mig þar sem ég geri alltaf e-ð um helgar, símtal áðan frá Agnesi vegna þess að henni langaði svo að djamma:$

Núna bráðum skellur samt skólinn á, verður hellað mikið að gera þessa önn þannig að fínt einmitt bara að læra og vera góður um helgar, tala nú ekki um ef e-ð gengur í þessu deiteríi mínu og maður hefur kannski einhvern til að kúra með sér mmmmm, það er algjörlega það sem ég er búin að þurfa á að halda núna í desember/janúar, týpískt náttla fyrir mig að byrji e-ð að ganga í hösslinu þegar byrjar að sumra, akkúrat þegar maður þarf ekkert á því að halda og finnst fínt að vera einn hehh týpískt:!:

Segi svona, fór nú á deit í gær sem gekk bara helv.. vel,væri alveg til í að hitta þennan gutta aftur sem er ekkert svo algengt fyrir mig þannig að kannski maður sé e-ð að þroskast og myndi minnka djammið, einbeita sér að skólanum og finna sér gaur8| nei róóóleg kannski ekki alltof mikið í einu hahahaha áður en ég veit af þá er maður bara byrjaður að halda matarboð og íhuga barneignir össs:!:

Segi svona, náttla ég ein sem finnst þetta alveg hrikalega massívt allar hinar eru komnar í þann pakka, eitt skref í einu byrjum á skólanum bara ehaggi bara elskurnar

Farinn í tjillið upp í rúm njóta þess að vera áhyggjulaus og hafa ekkert að læra á morgun á meðan maður getur það:D


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.01.2008 13:34:13 / Lilja

Nammi nammi namm

Ohhh veit ekki hvað er að mér....

held þetta sé janúar veikin:!:

er ekki að geta hunskast fram úr rúminu, hvorki á morgnana né seinni partinn:$ Langar bara að liggja upp í rúmi með nammi allan sólarhringinn:!:

Er þetta ekki bara janúar veikin???

Væri alveg til í að geta farið til læknis og fengið lyf við þessu:$ annars enda ég bara hvít as hell, feitari en allt og þunglynd af allri þessari inniveru:|

En vááááá væri til í að geta farið heim upp í rúm, stoppað í sjoppu fyrst og keypt mér nammi og lagst svo upp í rúm og kúrað:D

Djís louise

Spurning hvort maður fari að kúra eða DRULLI sér loksins á æfingu og fari að hætta þessari leti:!:


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.01.2008 10:54:58 / Lilja

Helgin

Best things in life are free, (bestu hlutirnir í lífinu eru ókeypis)

HAHAHHAHA hrikalega fannst mér þetta alltaf pirrandi setning, sérstaklega þar sem ég veit alveg 100% að ef ég ætti pening þá væri ég miklu hamingjusamari. En ég skal alveg viðurkenna það að þegar ég kynntist Arnari þá fann ég sérstaklega mikið fyrir því hversu satt þetta er, þá hamingju hefði ég aldrei getað keypt með neinum peningum, æji vitiði, þetta var bara pure tilfinning:!:

Svo fékk ég fréttir í gær:!:

Svona hamingju eins og eftir þær er heldur ekki hægt að kaupa, það lagðist bara yfir mig þessi massa hitatilfinning og í alvöru þá hitnaði held ég barasta hjartað mitt pínu! Langaði bara svo rosalega að deila með ykkur hamingjunni minni og kannski sérstaklega því ég hef ekki verið svona ánægð í næstum 2 ár, það eru nefnilega ekki bara fréttirnar í gær, sem eru samt 80% af þessu heldur líka það að lille bro er búinn að leyfa það sem ég var að vonast eftir;)

Segi bara skemmtið ykkur frábærlega og vonandi var helgin ykkar eins og mín

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.01.2008 12:12:11 / Lilja

Bæbæ Stekkjarhvammur

Flutningar um helgina

Wish us good luck;)

Kem með myndir af Fagrahvamminum og flutningunum eftir helgi

:)


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.01.2008 11:26:49 / Lilja

Lítil Saga

 Ok, þetta er ekkert sérlega falleg saga en ég verð samt eiginlega að segja hana....

Saga frá Siggu mágkonu

Vinafólk hennar voru eitt kvöld í nóvember að keyra einhversstaðar út fyrir veg, þannig að það var kolniðamyrkur og náttla engvir ljósastaurar. Allt í einu finna þau að þau keyra yfir e-ð, bæði í þokkalegu sjokki fer gaurinn út og athugar málin. Sér að hann hefur keyrt yfir kött, konan hans alveg miður sín algjör dýraunnandi en gaurinn ákveður að gera náttla það rétta í stöðunni, það er að taka köttinn af lífi. Hann byrjar að reyna taka hann úr hálslið en e-ð gengur það erfiðlega, kötturinn mjálmar aumingjalega og er e-ð skrýtinn, þannig að maðurinn endar á að taka stórann hnullung og klára málið þannig. Keyra þau svo heim bæði alveg nett miður sín þó sérstaklega konan hans sem hágrét:cry:Daginn eftir ætlar gaurinn að þrífa bílinn sem var allur út í mold og fleiru þegar hann tekur eftir einhverju skrýtnu á dekkinu:!:

Kom í ljós að “rétti” kötturinn var þar fastur

Rann upp fyrir greyið manninum8| að hann hefði ekki bara keyrt á kött og drepið hann, heldur tekið annan kött örugglega góðan félaga hins og drepið hann:!: 

Greyið kettirnir kannski tveir saman í rómantískum hugleiðingum þegar einhver óður maður kemur bara og slátrar þeim báðum....:| 

:!:Alveg dagssönn saga:!:


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.01.2008 15:50:58 / Lilja

2008

Nýtt ár komið, sem felur náttla í sér gömlu góðu væntingarnar að taka þetta árið í hollustunni, vera duglegur í ræktinni, massívt duglegur í skólanum og minnka djammið:)

Gamla árið var kvatt með heimsókn á áttuna, ákveðið á seinustu stundu rétt upp úr miðnætti ákvað ég að skella mér með Nonna bró og vinum hans og taka aðeins á því... Verð að segja kvöldið var skemmtilegra en ég bjóst við, kannski vegna þess að ég bjóst ekki við neinu en já það rættist alveg ágætlega úr kvöldinu;)

Flutningar þessa dagana, allt á rústi allsstaðar og smátt og smátt erum við að kveðja gamla góða stekkjarhvamminn og flytja í fagrahvamminn, næsta helgi verður so final stökkið þegar við flytjum allt heila klabbið og gistum eftir helgina, skrýtið:$ mjög svo....

Annars var ég að átta mig á kaldri staðreynd á föstudaginn:!: Hittumst nokkuð margar stelpur úr hfj og vorum bara að spjalla um daginn og veginn, allt í einu áttaði ég mig á því að ég var virkilega eina sem var á lausu8| og ekki bara af þessum stelpum, heldur seriously af öllum stelpum sem ég þekki, erum við að tala um sorglegt eða:$ Djís verð eiginlega að segja þa, sérstaklega þar sem hinar stelpurnar eru flestar í alvarlegum samböndum, íbúðir og jafnvel börn komin í spilið og ég, HAHA ég er að spá í að kannski kaupa mér íbúð með litla bró:|

:!: Sorglegt:!:

Eitt gott samt:D afmælið mitt:haha:

Jebbs styttist í 25 ára afmælið mitt, á afmæli 27 janúar en ætla halda það 2 febrúar á neðri hæðinni á hverfis.... Styttist í að maður fari að bjóða og sona úúúúú hlakka so til:) elska afmæli, einn dagur á ári sem maður á aaaallleiinnn, sem betur fer er ég ekki tvíburi segi ég bara;)

Segi bara seinna elskurnar, vonandi gengur ykkur sem flestum áfram vel með áramótaheitin sem samt gufa örugglega upp þegar nær dregur febrúar;)

 

Seinna

L.


» 4 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  47  Alls: 168450
Klukkan
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti