Súkkulaði, át, rúm og sjónvarpið
Vá fór á djammið á föstudaginn, ég, Ingunn og Stína
Helvíti gaman, kíktum á Svanhildi í partý þar
Svo fór ég, Ingunn, Stína, Elva og Anna í bæinn
Vorum að missa okkur, sátum uppi því við komum svo snemma í bæinn að við náðum einu af stóru borðunum uppi

En gerðum mjög lítið af því að sitja

Jes sir
Dönsuðum og dönsuðum og dönsuðum uppi, allar í massa gír og létt klikkaðar
Já var helviti gaman, át svo næstum heila pítsu á pítsa king á leiðinni heim
Búin að vera étandi næstum síðan
í gær var það þynnkumatur, snakk, frostpinnar og fullt af ídýfu
og í dag er það búið að vera súkkulaði ofan á súkkulaði og aðeins meira súkkulaði
Ef ég næ að skafa mér upp úr rúminu þá ætla ég að reyna fara vinna á morgun, alla vega smá tíma

Seinna Lilja bolla